ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E

Ætlar að hindra inngöngu Íslands í ESB

12:50 › 4. janúar 2010
Marco segir forræðismál sitt eins og opið sár í huga ítölsku þjóðarinnar og þarlend stjórnvöld komi til með að beita sér á réttum tíma.

Marco segir forræðismál sitt eins og opið sár í huga ítölsku þjóðarinnar og þarlend stjórnvöld komi til með að beita sér á réttum tíma.

Marco Brancaccia, ítalskur fréttaritari og barnsfaðir Snæfríðar Baldvinsdóttur, dóttur Jóns Baldvins Hannibalssonar, segir ítölsk stjórnvöld standa við bakið á sér í erfiðri forræðisdeilu. Hann segir málið eiga eftir að hafa áhrif á umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu.

Ítalinn Marco Brancaccia, fyrrverandi tengdasonur Jóns Baldvins Hannibalssonar fyrrverandi ráðherra og sendiherra, fullyrðir að ítalski aðstoðarutanríkisráðherrann, Alfredo Mantica, hafi rætt viðkvæma forræðisdeilu hans á nýlegum fundi í utanríkisráðuneytinu íslenska.

Það fékkst staðfest frá ráðuneytinu að ráðherrann hefði minnst á deiluna utan dagskrár. Marco segir ítölsk stjórnvöld standa á bak við hann og það kunni að hafa áhrif á aðildarviðræður Íslands um inngöngu í Evrópusambandið. Hann ætlar fljótlega að hringja í Mantica og þakka honum fyrir stuðninginn.

„Ítölsk stjórnvöld munu taka málið upp á réttum stað og á réttum tíma. Hegðun Jóns Baldvins í minn garð á eftir að verða íslensku þjóðinni dýrt,“ segir Marco í samtali við DV.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.