ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

Sigmundur Ernir: Móðgun við þing og þjóð

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:30 › 30. janúar 2010

Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis verða að liggja á brettum á bensínstöðvum landsins líkt og símaskráin. „Skýrslan verður að vera eins aðgengileg að nokkur kostur er. Hér nægir ekki netið eitt,“ skrifar Sigmundir Ernir á heimasíðu sína.

Hann segir Ríkisútvarpið eiga síðan að standa að um klukkutíma langa úttektarþáttum á skýrslunni í þrjár vikur samfleytt þar sem ekkert verður dregið undan. Þættirnir eigi að vera undir stjórn Kristins Hrafnssonar og Þóru Arnórsdóttur að mati Sigmundar Ernis.

Hann segir hinsvegar það vera móðgun við þing og þjóð að höfundar skýrslunnar séu ekki búnir að nefna þann dag sem þeir ætli að birta afurð sína.

„Það er ekki hægt að bíða lengur eftir því að höfundar rannsóknarskýrslu Alþingis nefni þann dag sem þær ætla að birta afurð sína. Hitt er móðgun við þing og þjóð.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.