Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Ein milljón króna hefur safnast vegna minnisvarða sem til stendur að reisa á næstunni um samþykkt Icesave-frumvarpsins. Á minnisvarðanum verður hægt að finna nöfn þeirra þingmanna sem greiddu atkvæði með Icesave-frumvarpinu sem og nöfn þeirra sem sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Fjársöfnun til stuðnings byggingar minnisvarðans hófst í desember og hefur hún gengið vel að því er fram kemur á vefsíðunni Iceslave.is. Tilgangurinn með minnisvarðanum er að reyna að koma í veg fyrir að sagan endurtaki sig og á að vera áminning til framtíðarþingmanna um að verk þeira gleymist ef til vill ekki. Leita forsvarsmenn hópsins nú að listamanni sem tilbúinn er að byggja verkið.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir