Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Eins og margir vita hefur leikarinn Jón Gnarr ákveðið að stofna stjórnmálaflokkinn Besti flokkurinn. Jón hyggst bjóða fram í borgarstjórnarkosningunum í vor og er svo gott sem búinn að klára öll smáatriði hvað það varðar. Hann mætti í þátt Audda og Sveppa á Stöð 2 í kvöld þar sem ýmislegt áhugavert kom í ljós.
Jón sagði til að mynda að viðtalið hans í kvöld yrði hans síðasta fyrir kosningarnar. Hann myndi ekki mæta í nein viðtöl né umræður fyrir sveitastjórnarkosningarnar.
Jón fór með þáttastjórnendum niður Laugaveg og hittu þeir félagarnir stjórnmálaþáttastjórnandann Egil Helgason. Egill sagði aðspurður í þættinum að hann gæti vel hugsað sér að kjósa Besta flokkinn, alveg eins og aðra flokka.






Hvolpurinn einkamál Vilhjálms og Katrínar
Christina Aquilera þarf að hvíla sig á brúnkukremi
Líður vel nakinni
Sjáðu bestu nærfataauglýsingar Beckhams
Þyngdin er vandamál