ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW

Saksóknari hefur alltaf vitað um aðkomu Bjarna Ben

11:10 › 27. janúar 2010
Ekki er útilokað að Bjarni Ben verði yfirheyrður vegna rannsóknar sérstaks saksóknara á Sjóvá-málinu.

Ekki er útilokað að Bjarni Ben verði yfirheyrður vegna rannsóknar sérstaks saksóknara á Sjóvá-málinu.

Heimildir DV herma að ekki sé útilokað að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, verði yfirheyrður vegna aðkomu sinnar að viðskiptum eignarhaldsfélagsins Vafnings árið 2008. DV hefur greint ítarlega frá viðskiptum félagsins en Bjarni veðsetti hlutabréf Vafnings febrúar 2008. Vafningur var svo notaður til endurfjármagna lán eigenda Milestone og föður og frænda Bjarna.

Samkvæmt traustum heimildum DV hefur embætti saksóknara vitað um aðkomu Bjarna að viðskiptum Vafnings frá því byrjað var að rannsaka Sjóvá í fyrra. Embættið á gögn sem sýna fram á þátttöku hans í viðskiptum félagsins. Ekki er vitað hvers konar gögn eða hvort embættið hefur sömu gögn undir höndum og DV: Umboðin þar sem Bjarna er veitt heimild til að veðsetja bréf félagsins. Aðeins er víst að fljótlega eftir að rannsóknin á málinu hófst dúkkaði nafn Bjarna upp í þeim gögnum sem embætti saksóknara hefur verið að skoða vegna málsins.

Þrátt fyrir að embættið hafi vitað í langan tíma að Bjarni hafi tengst viðskiptunum hefur hann ekki verið boðaður í yfirheyrslu. Ástæðan fyrir þessu kann að vera sú að embættið telji að Bjarni geti ekki komið fram með mikilvægar upplýsingar sem varpað geti ljósi á málið sem aðrir sem tengjast því geta ekki. Sú staðreynd að Bjarni hefur ekki verið yfirheyrður bendir hins vegar til að saksóknari telji Bjarna að minnsta kosti ekki hafa verið einn aðalmanninn í Vafningsviðskiptunum og því sé óþarfi að kalla hann til yfirheyrslu. Saksóknari hugsar jú fyrst og fremst um hvort vitnisburðir geti hjálpað honum í rannsóknunum á hruninu. En staða Bjarna að þessu leyti kann þó að breytast eftir því sem ný atriði koma fram um aðkomu hans að viðskiptunum.

Ítarlega er fjallað um stöðu Bjarna Ben í DV í dag


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.