ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.1° 12m/s WSW

Jón: Vafningur veikir Bjarna Ben

14:35 › 27. janúar 2010
Jón Ólafsson telur að staða Bjarna veikist vegna Vafningsmálsins.

Jón Ólafsson telur að staða Bjarna veikist vegna Vafningsmálsins.

  • Jón Ólafsson heimspekingur.

    Jón Ólafsson heimspekingur.

Jón Ólafsson, prófessor í heimspeki við Háskólann á Bifröst, telur að á þessu stigi málsins sé ekki hægt að fullyrða að Bjarna Ben beri að segja af sér formennskunni eða þingmennskunni fyrir Sjálfstæðisflokkinn út af Vafningsmálinu. Jón segir ástæðuna fyrir þessu vera þá að miðað við þær upplýsingar sem liggja fyrir sé ekkert hægt að fullyrða um siðferðilega ábyrgð hans á þessu stigi málsins. DV bað nokkra álitsgjafa að tjá sig um stöðu Bjarna vegna Vafningsmálsins.

Jón telur hins vegar að Vafningsmálið veiki Bjarna nokkuð. „Það hlýtur að draga úr pólitískum styrk manna þegar þeir reynast vera aðilar að subbulegum viðskiptum, að ekki sé talað um siðferðilega ámælisverð eða jafnvel ólögleg viðskipti ... Hans pólitíska kapital hlýtur að minnka við þessa tengingu og umfjöllun og um leið styrkja þá í trúnni sem halda að Bjarni geti varla verið formaður Sjálfstæðisflokksins til langframa,“ segir Jón og er ljóst af skoðunum viðmælenda DV að þeir telja að enn sem komið er séu ekki komnar fram í dagsljósið nægilega miklar upplýsingar um aðkomu Bjarna að Vafningsviðskiptunum en að á sama tíma verði hann að koma fram og útskýra þátt sinn í þessum viðskiptum betur.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.