ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW

Guðmundur: Bjarni tók þátt í spilltu fjármálalífi

12:57 › 27. janúar 2010
Guðmundur Heiðar telur að Vafningsmálið gæti rýrt traust kjósenda á Bjarna Ben.

Guðmundur Heiðar telur að Vafningsmálið gæti rýrt traust kjósenda á Bjarna Ben.

  • Guðmundur Heiðar Frímannsson

    Guðmundur Heiðar Frímannsson

Guðmundur Heiðar Frímannsson, siðfræðingur og prófessor í heimspeki við kennaradeild Háskólans á Akureyri, segir aðspurður að það sé ótvírætt að Bjarni Benediktsson hafi veðsett hlutabréf BNT, Hafsilfurs og Hrómundar í Vafningi 8. febrúar fyrir tæpum tveimur árum í umboði föður síns og frænda. Hann telur að Bjarni hafi verið ólánssamur að þessu leyti því veðsetning hans hafi verið hluti af viðskiptum sem líkast til voru ólögleg. DV leitaði til nokkurra álitsgjafa og bað þá að velta fyrir sér stöðu Bjarna Ben um þessar mundir, í kjölfar frétta um aðkomu hans að Vafningsviðskiptunum.

„Eitt ólán Bjarna er að þessi veðsetning er hlekkur í orsakakeðju sem leiðir til ráðstöfunar fjár úr sjóðum Sjóvár sem er að líkindum ólögleg,“ segir Guðmundur sem telur að lykilatriði í málinu sé að fyrir liggi hversu mikið Bjarni vissi um þessi viðskipti þegar hann tók þátt í þeim. Væntanlega hvort hann hafi vitað um nærri 11 milljarða króna lánið sem Vafningur tók við frá Sjóvá um svipað leyti og hann veðsetti bréfin í félaginu.

„Spurningin er: Vissi hann hvað til stóð, hvað kæmi í kjölfar þessarar veðsetningar? Hann neitar því og engin ástæða eins og sakir standa til að efast um það. Annað ólán Bjarna var að taka þátt í fjármálalífi sem var spillt. Nú er Bjarni orðinn leiðtogi Sjálfstæðisflokksins og þetta mál gæti rýrt traust á honum sem stjórnmálaleiðtoga,“ segir Guðmundur Heiðar en af orðum hans sést að hann efast ekki um að Bjarni sé að segja satt þegar hann lýsir aðkomu sinni að viðskiptunum.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.