Guðmundur Ólason sagði í yfirheyrslum hjá sérstökum saksóknara í ágúst í fyrra að tvær ástæður væru fyrir því af hverju Sjóvá hefði tapað 30 milljörðum króna árið 2008. Annars vegar mætti rekja tapið til Racon Holding, sem fjárfest hafði í Invik, og hins vegar til tapsins á verði hlutabréfa Þáttar International í Glitni. Wernersbræður áttu Þátt International með Einari og Benedikt Sveinssonum og áttu hinir fyrrnefndu 5 prósent af 7 prósenta hlut félagsins í Glitni á meðan þeir Sveinsbræður áttu 2 prósenta hlut.
Verið var að endurfjármagna bæði þessi félög með lánunum frá Sjóvá og Glitni 29. febrúar og í báðum tilfellum var verið að gera það vegna þess að erlendur fjárfestingabanki, Morgan Stanley, vildi ekki endurfjármagna lán félagsins. Ástæðan var sú að strax í ársbyrjun 2008 voru blikur á lofti um að íslenska fjármálakerfið væri að fara á hliðina. Erlendir bankar einfaldlega lokuðu á íslensk fyrirtæki og eignarhaldsfélög og mun Guðmundur hafa orðað það svo að hlutabréf í íslenskum fjármálafyrirtækjum hafi alls ekki verið vinsæl vara á þessum tíma. Þáttur og Racon þurftu því að leita að fjármagni hérlendis til að standa í skilum við Morgan Stanley og fengu það á endanum frá Glitni og Sjóvá.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna