ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.4° 10m/s WSW

Þór með hnút í maganum vegna rannsóknar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:45 › 24. janúar 2010
Þór Sigfússon. Fékk 36 milljónir í árslaun fyrir að vita sama sem ekki neitt. Eða hvað?

Þór Sigfússon. Fékk 36 milljónir í árslaun fyrir að vita sama sem ekki neitt. Eða hvað?

Þór Sigfússon, fyrrverandi forstjóri Sjóvár sem ítarlega er fjallað um í helgarblaði DV, viðurkenndi í kvöldfréttum Stöðvar 2 að hann væri með kvíðahnút í maganum vegna rannsóknar sérstaks saksóknara á honum. Þór sagðist sjá mikið eftir ýmsu í tíð sinni sem forstjóri Sjóvár.

Eins og DV greindi frá virðist Þór hafa vitað lítið um starfsemi tryggingafélagsins í yfirheyrslum hjá sérstökum saksóknara.

Líkt og kemur fram í helgarblaði DV, þar sem fjallað er um yfirheyrslurnar yfir Þór hjá sérstökum saksóknara, vissi Þór oft á tíðum ekkert undir hvaða samninga hann var að skrifa hjá tryggingafélaginu. Hann átti aðspurður í erfiðleikum með að lýsa viðskiptum félagsins og kom fram að henni hefði yfirleitt ekki lesið samningana sem hann skrifaði undir. Þór kvaðst hafa treyst starfsmönnum Milestone og þeim sem báðu hann um að skrifa undir samningana og að hann hefði gert það í góðri trú.

Fram kom í fréttum Stöðvar 2 að Þór væri grunaður um að hafa valdið Sjóvá tjóni með vanrækslu sinni í starfi. Viðurlög við slíkum umboðssvikum geta varðað allt að sex ára fangelsi.

Þór vildi ekki gangast við því aðspurður að það hefði verið hans starf sem forstjóra að vita nákvæmlega undir hvað hann var að skrifa. Hans starf hafi verið að umkringja sig fólki sem hann gæti treyst til að ráðleggja honum í þeim efnum. Sjálfur hefði hann aldrei getað lesið alla þessa samninga sem margir hverjir voru hundruð blaðsíðna.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.