ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Yfirheyrslurnar í Milestone: Þór vissi ekki um annan veðrétt Sjóvá

14:30 › 23. janúar 2010
Vissi ekki Sjóvá ætti annan veðrétt þegar hann skrifaði undir.

Vissi ekki Sjóvá ætti annan veðrétt þegar hann skrifaði undir.

Þór Sigfússon, fyrrverandi forstjóri Sjóvá, gerði sér ekki grein fyrir að Sjóvá ætti einungis annan veðrétt í eignum eignarhaldsfélagsins Vafnings þegar hann skrifaði upp á 10,5 milljarða lán til félagsins í febrúar 2008. Veðið fyrir láninu var í hálfbyggðum lúxusíbúðaturni í Asíu og breskum fjárfestingasjóði sem átti verslanir í Bretlandi. Glitnir átti fyrsta veðrétt í eignum Vafnings en bankinn hafði einnig lánað Vafningi.

Lánveitingarnar tengdust endurfjármögnun dótturfélaga Milestone og félaga í eigu Einars og Benedikts Sveinssona á lánum frá bandaríska fjárfestingabankanum Morgan Stanley sem bankinn neitaði að endurfjármagna vegna þeirra erfiðleika sem blöstu við í íslensku efnhagslífi. Endurfjármögnunin snerist um að dótturfélög Milestone gætu haldið hlutabréfum sínum í Glitni og sænska fjármála- og tryggingafélaginu Moderna. Milestone átti Glitnisbréfin með Einari og Benedikt.

Um svipað leyti og þetta á sér stað, í febrúar 2008, veðsetur Bjarni Benediktsson, þáverandi formaður BNT og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hlutabréf Benedikts, föður síns, og Einars, frænda síns, í Glitni. Glitnir átti, eins og áður segir, fyrsta veðrétt í eignum Vafnings og því átti Sjóvá ekki mikla möguleika á að fá eitthvað upp í kröfur tryggingafélagsins. Vafningslánið var á endanum afskrifað þegar reikningsárið 2008 var gert upp hjá Sjóvá.

Ítarlega er fjallað um yfirheyrslurnar í Milestone-málinu í helgarblaði DV.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.