ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 11m/s WSW

Þór fékk 36 milljónir í laun hjá Sjóvá

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:57 › 23. janúar 2010
Var með 36 milljónir í árslaun hjá Sjóvá.

Var með 36 milljónir í árslaun hjá Sjóvá.

Þór Sigfússon, fyrrverandi forstjóri Sjóvá, var með tæpar 36 milljónir króna í árslaun árið 2006. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins fyrir árið 2008. Árið áður var Þór með tæpar 33 milljónir í árslaun. Þegar litið er til þess hversu lítið Þór virtist hafa vitað um starfsemi tryggingafélagsins í yfirheyrslum hjá sérstökum saksóknara er nokkuð merkilegt að hann hafi verið með svo há laun.

Líkt og kemur fram í helgarblaði DV, þar sem fjallað er um yfirheyrslurnar yfir Þór hjá sérstökum saksóknara, vissi Þór oft á tíðum ekkert undir hvaða samninga hann var að skrifa hjá tryggingafélaginu. Hann átti aðspurður í erfiðleikum með að lýsa viðskiptum félagsins og kom fram að henni hefði yfirleitt ekki lesið samningana sem hann skrifaði undir. Þór kvaðst hafa treyst starfsmönnum Milestone og þeim sem báðu hann um að skrifa undir samningana og að hann hefði gert það í góðri trú.

Meðal annars vissi Þór lítið um lánasamning á milli eignarhaldsfélagsins Vafnings og Sjóvá þar sem tryggingafélagið lánaði Vafningi 10,5 milljarða króna. Þrátt fyrir þetta hafði Þór skrifað undir samninginn en í honum kom meðal annars fram að Sjóvá ætti annan veðrétt í eignum Vafnings. Þór vissi það ekki heldur þegar hann skrifaði upp á samninginn. Þór virðist því fyrst og fremst hafa fengið greitt fyrir að skrifa upp á samningana en ekki að taka ákvarðanir um hvað það ætti að gera.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.