Karl Wernersson sagðist ekki hafa vitað um tæplega 16 milljarða króna lánveitingar út úr Sjóvá þann 29. febrúar 2008. Hann var á þessum tíma stjórnarformaður Sjóvá.
Í yfirheyrslunum yfir Karli Wernerssyni hjá sérstökum saksóknara á seinni hluta síðasta árs mun hafa komið fram að hann, sem var stjórnarformaður Sjóvár og Milestone á þeim tíma sem Sjóvá lánaði Vafningi fjármunina, hafi ekki vitað um 15,7 milljarða lánveitingar til Vafnings og annarra dótturfélaga Milestone þann 29. febrúar 2008. Lánveitingar Sjóvá þennan dag eru til rannsóknar hjá embætti sérstaks saksóknara.
Karl skrifaði reyndar ekki undir lánasamningana heldur voru það eingöngu Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvár, og Sigríður Inga Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs félagsins. Þór skrifaði undir fjóra samninga og Sigríður undir einn.
Almennt séð mun Karl hafa verið sérlega óhjálplegur í yfirheyrslunum og sagt er að hann hafi lítið vitað um það sem starfsmenn sérstaks saksóknara spurðu hann um. Aðrar heimildir DV herma hins vegar að Karl hafi haft tögl og hagldir í Milestone-veldinu ætti því að hafa vitað um lánveitingarnar út úr félaginu þennan örlagaríka dag í sögu Sjóvá.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna