ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 11m/s WSW

29. febrúar 2008: Stór dagur í sögu Sjóvá

02:30 › 23. janúar 2010
Þór skrifaði undir lánasamningana sem gengið var frá þennan dag. Hann mun hafa gert það í góðri trú, að eigin sögn, og er fremur líklegt að hann hafi verið leiksoppur eigenda Sjóvá.

Þór skrifaði undir lánasamningana sem gengið var frá þennan dag. Hann mun hafa gert það í góðri trú, að eigin sögn, og er fremur líklegt að hann hafi verið leiksoppur eigenda Sjóvá.

Þann 29. febrúar 2008 áttu sér stað atburðir hjá Sjóvá sem eru lykilatriði í rannsókn sérstaks saksóknara á tryggingafélaginu og eiganda þess, Milestone. Stór hluti yfirheyrslnanna yfir Karli og Steingrími Wernerssonum og Guðmundi Ólasyni og Þór Sigfússyni mun hafa gengið út á að komast að því hvað átti sér stað þennan dag.

Þennan dag lánaði Sjóvá dótturfélögum Milestone samstals 15,7 milljarða króna. Þetta var 150 prósent af eigin fé félagsins. Fjármunirnir voru á endanum notaðir til að greiða bandaríska fjárfestingabankanum Morgan Stanley lán sem bankinn hafði veitt félögum í Milestone-samstæðunni til að kaupa hlutabréf í Glitni og sænska fjármála- og tryggingafyrirtækinu Invik. Því má segja að bótasjóður Sjóvár hafi verið notaður til að greiða erlendar skuldir sem Milestone-menn og viðskiptafélagar þeirra, Einar og Benedikt Sveinssynir, höfðu stofnað til við Morgan Stanley vegna hlutabréfakaupa.

Milljarðarnir 15 voru á endanum afskrifaðir úr bókum félagsins og skýra þessar lánveitingar um helming af 30 milljarða tapi tryggingafélagsins á árinu 2008.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.