Þór Sigfússyni, fyrrverandi forstjóra Sjóvár, mun hafa verið tíðrætt um það í yfirheyrslunum hjá sérstökum saksóknara í fyrra að Milestone hafi verið komið í vandræði í febrúar 2008 og að félagið hafi orðið að verða sér úti um lausafé til að standa í skilum við Morgan Stanley vegna lána til dótturfélaga í eigu samstæðunnar. Milestone átti Sjóvá.
Á þessum tíma voru erlend fjármálafyrirtæki að gjaldfella lán til íslenskra eignarhaldsfélaga vegna þess að blikur voru á lofti um að farið væri að síga á ógæfuhliðina í íslensku efnahagslífi. Íslensku bankarnir - og íslensk tryggingafyrirtæki - fengu því eignarhaldsfélög eins og Milestone í fangið því þau þurftu að verða sér úti um fjármögnun annars staðar. Það var af þessum sökum sem Vafningsviðskiptin áttu sér stað, líkt og greint er frá í DV í dag þar sem rætt er um yfirheyrslurnar yfir Þór og Karli Wernerssyni.
Eitt af því sem Þór ræddi í yfirheyrslunum um var að það hefði verið Íslendingur sem starfaði hjá Morgan Stanley í London sem hefði haft milligöngu um lánin til Milestone sem Þáttur International og Racon Holding þurftu að greiða þegar félögin tóku við 10,5 milljörðum úr bótasjóði Sjóvár. Þór mun hafa kallað manninn vin þó að hann hafi ekki verið nafngreindur. Maðurinn mun heita Sigurður Arngrímsson og starfar í höfuðstöðvum.
Ekki náðist í Sigurð í höfuðstöðvum Morgan Stanley í London á fimmtudaginn. Sigurður var sagður á ferðalagi.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna