ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Veðsettu bótasjóð Sjóvár fyrir Vafning

09:05 › 22. janúar 2010
Þór Sigfússon. Skrifað undir í blindni og treyst toppunum hjá Milestone.

Þór Sigfússon. Skrifað undir í blindni og treyst toppunum hjá Milestone.

  • Orð Þórs Sigfússonar munu benda til að fjárfestingararmur Sjóvár, sem stjórnað var alfarið af starfsmönnum Milestone, hafi einfaldlega tekið yfir vátryggingahluta félagsins.

    Orð Þórs Sigfússonar munu benda til að fjárfestingararmur Sjóvár, sem stjórnað var alfarið af starfsmönnum Milestone, hafi einfaldlega tekið yfir vátryggingahluta félagsins.

Þór Sigfússon, fyrrverandi forstjóri Sjóvár, mun hafa borið því við í yfirheyrslum sem fóru fram yfir honum hjá sérstökum saksóknara að hann hafi engar ákvarðanir tekið varðandi fjárfestingar og lánveitingar Sjóvár á árunum fyrir hrunið. Forstjórinn fyrrverandi vissi sömuleiðis oft ekki hvaða samninga hann var að skrifa undir og hann gat ekki útskýrt hver tilgangurinn hefði verið með þeim samningum sem hann staðfesti með undirritun sinni.

Viðkvæði Þórs mun almennt hafa verið að hann hafi treyst starfsmönnum Milestone, forstjóranum Guðmundi Ólasyni og aðstoðarforstjóranum Jóhannesi Sigurðssyni, þegar þeir báðu hann um að skrifa undir skjöl og samninga sem tengdust Sjóvá. Þór mun nánast alltaf hafa borið því við að hann hafi skrifað upp á skjölin í góðri trú og vegna þess að honum hafi verið sagt að stjórn Sjóvár hefði samþykkt samningana sem um ræddi.

Niðurstaðan úr yfirheyrslunum yfir Þór er því sú, samkvæmt heimildum DV, að Þór hafi einfaldlega verið eins konar verkfæri í höndum starfsmanna Milestone og stærsta eiganda þess, Karls Wernerssonar. Þeir útbjuggu skjöl um fjárfestingar og lán sem síðan var farið með til Þórs og hann undirritaði, oft á tíðum án þess að vita nákvæmlega hvað það var sem hann var að skuldbinda tryggingafélagið til.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.