Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Tvær bílveltur urðu í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í kvöld. Um átta leytið var tilkynnt um bílveltu á Biskupstungnabraut og voru fimm í bílnum; fjórir Frakkar og einn Íslendingur. Fólkið slapp án meiðsla en bíllinn er mikið skemmdur ef ekki ónýtur.
Skömmu síðar varð bílvelta skammt frá Litlu kaffistofunni. Einn maður var í bílnum og hlaut hann minniháttar meiðsli. Bifreiðin skemmdist töluvert. Að sögn varðstjóra eru bæði óhöppin rakin til mikillar hálku sem myndaðist skyndilega í kvöld.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna