ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Þór las oft ekki samningana sem hann skrifaði undir hjá Sjóvá

13:00 › 22. janúar 2010
Las oft ekki samningana sem hann skrifaði undir fyrir hönd Sjóvár.

Las oft ekki samningana sem hann skrifaði undir fyrir hönd Sjóvár.

Sem dæmi um hversu litla þekkingu Þór Sigfússon, fyrrverandi forstjóri Sjóvár, hafði á mörgum af viðskiptum tryggingafélagsins sem hann skrifaði upp á mun hann ekki hafa getað útskýrt hver ástæðan var fyrir 10,5 milljarða lánveitingunni frá Sjóvár til Vafnings í febrúar 2008. Enn fremur vissi Þór ekki hverjir forsvarsmenn Vafnings voru né hver tilgangurinn var með lánveitingunni. Ítarlega er greint frá yfirheyrslunum yfir Þór hjá sérstökum saksóknara í DV í dag.

Jafnframt vissi Þór ekki hvaða eignir Vafningur átti en það voru eignir sem dótturfélög Sjóvár höfðu selt inn í félagið - lúxusturninn í Makaó og breski fjárfestingasjóðurinn KCAJ. Samt skrifaði hann undir lánasamninginn á milli Vafnings og Sjóvár ásamt Guðmundi Ólasyni. Þór var því að skrifa undir lánasamning sem hann vissi lítið sem ekkert um auk þess sem hann mun hafa sagt við yfirheyrslur að hann hafi ekki lesið samninginn yfir áður en hann skrifaði undir hann.

Þór mun hafa borið því við í yfirheyrslunum að lánasamningurinn hafi verið útbúinn af starfsmönnum Milestone á skrifstofu félagsins á Suðurlandsbraut og að hann hafi treyst því að samningurinn hefði verið borinn undir stjórn Sjóvár áður en hann var beðinn um að undirrita hann. Ekkert á lánasamningnum benti hins vegar til þess þó svo að nafn Guðmundar Ólasonar væri á samningnum. Í stað þess að svara því sjálfur af hverju hann hefði skrifað undir lánasamninginn og af hverju lánið hefði verið veitt vísaði hann á starfsmenn Milestone og Sjóvár sem væru framúrskarandi fólk, sem hann treysti, og sagðist hafa verið í góðri trú. Enn frekar sagði hann að eðli lánasamningsins hefði ekki verið útskýrt fyrir honum.

Forstjóri Sjóvár virðist því alfarið hafa treyst því að starfsmenn segðu honum satt og rétt frá og að dómgreind þeirra og stjórnar Milestone væri góð. Dómgreind hans var aftur á móti ekki betri en svo að hann skrifaði upp á 10,5 milljarða lánasamninginn án þess að vita út á hvað samningurinn gekk. Starfsmönnum sérstaks saksóknara mun hafa þótt þetta þekkingarleysi Þórs um samninginn mjög sérstakt.

Niðurstaðan í yfirheyrslunum var því sú að Þór stóð á gati um Vafning og gat ekki svarað spurningum saksóknara um lánið þar sem hugmyndir hans um það væru óljósar.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.