Skilnaður hjónanna Lisu Tchenguiz og Vivian Imerman gæti orðið sá dýrasti í sögu Bretlands. Lisa er systir viðskiptajöfranna Roberts og Vincent Tchenguiz. Bræðurna ættu margir að þekkja en þeir voru meðal stærstu viðskiptavina Kaupþings.
Robert var þó öllu umsvifameiri en bróðir sinn og einn helsti viðskiptavinur Kaupþings. Átti hann meðal annars hlut í Existu og sat þar sem stjórnarmaður. Exista var sem kunnugt er stærsti eigandi Kaupþings.
Hjónin, sem bæði hafa verið fyrirferðamikil í bresku viðskiptalífi, gengu í hjónaband fyrir sex árum. Þá gerðu þau með sér kaupmála þar sem nákvæmlega var útlistað hvernig eignum þeirra yrði skipt ef til skilnaðar kæmi. Þar sem auður Imermans hefur vaxið gríðarlega síðan þá vill Lisa fá stærri hluta af kökunni, eða rúmlega 100 milljónir punda, sem gera tuttugu milljarða króna.
Skilnaðurinn er orðinn að hálfgerðum farsa og er kostnaðurinn við réttarhöldin í málinu kominn upp í 5,5 milljónir punda. Þegar hjónin skildu var Imerman hent út af skrifstofu sinni sem hann deildi með bræðrum Lisu, áðurnefndum Roberti og Vincent. Voru skjöl tekin af tölvu hans en í þeim var að finna upplýsingar um auðæfi hans.
Dómari hefur nú úrskurðað að Lisa mátti taka gögn af tölvu Imermans en hann hefur sjálfur áfrýjað þeim dómi. Ljóst er að málinu er hvergi nærri lokið en Imerman er nú fluttur inn til fyrri eiginkonu sinnar en saman eiga þau þrjú börn.
Robert og Vincent Tchenguiz gera rúmlega 400 milljarða kröfu í þrotabú bankans samkvæmt kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. Um er að ræða kröfur frá tveimur vogunarsjóðum í skattaskjólunum Guernsey og Tortóla.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung