ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

Svæðisstöðvar RÚV skornar

Jóhann Hauksson johannh@dv.is
12:28 › 22. janúar 2010

Nokkrum reyndum starfsmönnum svæðisstöðva Ríkisútvarpsins á Akureyri, Ísafirði og Egilsstöðum hefur verið sagt upp störfum auk þeirra sem missa störf sín í höfuðustöðvum RÚV í Reykjavík.
Karli Eskil Pálssyni fréttamanni á Akureyri, Guðrúnu Sigurðardóttur á Ísafirði og Ásgrími Inga Arngrímssyni á Egilsstöðum hefur verið sagt upp störfum. Einum tæknimanni, Gunnlaugi Starra Gylfasyni, var einnig sagt upp störfðum á Akureyri.

Samkvæmt heimildum DV stendur til að leggja niður svæðistöðvar RÚV á Ísafirði og á Egilsstöðum í núverandi mynd og selja húseign RÚV á Egilsstöðum. Leigusamningi á húsnæði RÚV á Akureyri verður einnig sagt upp samkvæmt heimildum DV.
Þá hætta einnig störfum fréttamennirnir Friðrik Páll Jónsson, Guðrún Frímannsdóttir, Jóhanna Margrét Einarsdóttir og Borgþór Arngrímsson.

Varafréttastjórar úr Reykjavík mættu í svæðistöðvarnar í morgun til þess að tilkynna uppsagnir og breytingar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?