Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Hinn 25 ára gamli Joshu Good frá Connecticut í Bandaríkjunum brást harkalega við þegar hópur óharðnaðra unglingspilta kastaði snjóboltum í bifreið hans þegar hann var á ferð á dögunum.
Í staðinn fyrir að keyra bara áfram, eða láta nokkur vel valin orð falla, stöðvaði Good bifreið sína, steig út og ógnaði piltunum, sem eru þrettán ára, með hníf. Að því loknu neyddi hann einn piltanna til að koma með sér og ók svo í burtu.
Þetta kann að verða Good dýrkeypt, þó hann hafi talað duglega yfir hausamótunum á piltinum áður en hann ók honum heim ómeiddum, því hann á nú yfir höfði sér ákæru fyrir mannrán af fyrstu gráðu og hótanir með lífshættulegu vopni.
Gæti Good átt yfir höfði sér 25 ára fangelsisdóm vegna málsins.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu