ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW

Sjóvá lánaði eigendum sínum 15,7 milljarða á einum degi

10:00 › 22. janúar 2010
Karl Wernersson var stjórnarformaður Sjóvár og Milestone og stærsti eigandi síðarnefnda félagsins.

Karl Wernersson var stjórnarformaður Sjóvár og Milestone og stærsti eigandi síðarnefnda félagsins.

Sérstakur saksóknari efnahagshrunsins, Ólafur Hauksson, rannsakar lánveitingar frá tryggingafélaginu Sjóvá til eignarhaldsfélagsins Vafnings og Racon AB sem veitt voru þann 29. febrúar árið 2008. Sömuleiðis rannsakar Ólafur tvær lánveitingar frá Glitni til Vafnings sem bárust líklega í gegnum eignarhaldsfélagið Svartháf. Lánveitingarnar frá Sjóvá til Vafnings voru samtals upp á 10,5 milljarða króna. Samtals lánveitingar Sjóvár til félaganna tveggja numu 15,7 milljörðum þennan dag og fékk Racon því um 5 milljarða króna. Upphæðin nam 150 prósentum af öllu eigin fé Sjóvár á þessum tíma og nærri 70 prósentum af vátryggingaskuld tryggingafélagsins.

Heimildir DV innan úr stjórnkerfinu herma að í yfirheyrslunum yfir Karli og Steingrími Wernerssonum og Þór Sigfússyni á seinni hluta síðasta árs hafi þeir verið spurðir ítarlega um lánveitingarnar og tilgang þeirra.

Vafningur var í eigu dótturfélags Sjóvár, sem aftur var í eigu Milestone, og eignarhaldsfélaganna Skeggja og Máttar. Karl og Steingrímur Wernerssynir áttu Milestone og Skeggi og Máttur voru sameiginlega í eigu þeirra og Benedikts og Einars Sveinssona. Sjóvá var því að lána félagi sem það átti stóran hlut í milljarða króna.

Lánið frá Glitni var síðan notað til að greiða skuld annars eignarhaldsfélags, Þáttar International, við bandaríska fjárfestingabankann Morgan Stanley. Þannig gat Þáttur International haldið hlutabréfum sínum í Glitni sem Morgan Stanley hafði hótað að leysa til sín með veðkalli þar sem gengi bréfanna í Glitni var komið niður fyrir 20 - ákvæði þess efnis var í lánasamningi Þáttar við bankann.
Lánið til Racon Holding AB var sömuleiðis notað til að greiða skuld þess félags við Morgan Stanley en hún hafði myndast þegar félagið keypti sænska fjármála- og tryggingafyrirtækið Invik, síðar Moderna AB, árið 2007.

Þáttur International var í eigu dótturfélaga Sjóvár og félaga í eigu Einars og Benedikts Sveinssona, líkt og DV greindi frá í desember. Sonur Benedikts, Bjarni Benediktsson, veðsetti hlutabréfin í Vafningi í febrúar 2008 en umboð hans til þess eru dagsett 8. febrúar 2008. Veðsetning Bjarna var að öllum líkindum til að tryggja lánveitingarnar frá Glitni sem sérstakur saksóknari mun hafa spurt Karl og Steingrím Wernerssyni um í yfirheyrslunum. Milestone og Einar og Benedikt áttu nákvæmlega jafnstóra eignarhluta í Þætti International og Vafningi. Bjarni hefur borið því við í viðtali við DV að hann hafi einungis veðsett bréfin vegna þess að ættingjar hans hafi verið í útlöndum en aðkoma hans að viðskiptunum hafi ekki verið önnur.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.