ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW

Páll þegir um skýrsluna svörtu

14:25 › 22. janúar 2010
Páll Hreinsson, formaður rannsóknarnefndar Alþingis, tekur ekki við spurningum um skýrsluna alræmdu.

Páll Hreinsson, formaður rannsóknarnefndar Alþingis, tekur ekki við spurningum um skýrsluna alræmdu.

Páll Hreinsson, formaður rannsóknarnefndar Alþingis, vill ekkert segja um hvort skýrsla nefndarinnar komi út á tilsettum tíma. Skýrslan á að vera lögð fram eigi síðar en 1. febrúar eftir að hafa verið frestað einu sinni áður, en hún átti upphaflega að vera lögð fram 1. nóvember.

DV lagði inn fyrirspurn til Páls á skrifstofu rannsóknarnefndarinnar í morgun og þegar blaðamaður hafði samband aftur nú fyrir stundu fengust þær upplýsingar að formaðurinn Páll Hreinsson væri ekki til viðtals um skýrsluna. Ekkert væri að frétta, og fréttatilkynning yrði send út í næstu viku ef tilefni væri til.

Orðrómur hefur verið uppi um að skýrsla nefndarinnar muni ekki koma út þann 1. febrúar líkt og stefnt er að, heldur verði frestað um óákveðinn tíma. Skýrslunnar er beðið með mikilli eftirvæntingu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.