Útvarpsstjóri á lúxusjeppa. Skar niður jeppahlunnindi sín í leið og hann skar niður fjölmörg störf. Mynd DV/Samsett
Útvarpsstjórinn Páll Magnússon virðist ætla að skila Audi Q7 lúxusjeppanum sem hann hefur haft afnot af sem hluta af ráðningarsamningi sínum við Ríkisútvarpið. Páll mun hafa greint frá þessu á starfsmannafundi nú eftir hádegi.
Kostnaður RÚV vegna rekstrarleigu á bifreiðinni hefur numið 205 þúsund krónum á mánuði frá því hann var keyptur árið 2007. Kostnaðurinn á ári nam því tæpum 2,5 milljónum króna.
Reyndar mun þetta var annar Audi Q7 jeppinn sem Páll Magnússon hefur verið á hjá RÚV því árið 2008 varð útvarpsstjórinn að skila þeim fyrsta sem keyptur var árið áður afþví hann reyndist gallaður. Fékk hann því nýjan frá Heklu.
Audi Q7 jeppar geta kostað allt frá 9 og upp í 15 milljónir króna.
Jeppahlunnindi útvarpsstjórans hafa verið harðlega gagnrýnd allt frá því þeim var komið á. En nú herma heimildir að Páll hafi ákveðið að skila lúxusjeppanum. Enda var hann að framkvæma blóðugan niðurskurð, sem kostað hefur tugi starfsmanna RÚV starfið í dag og gær.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna