ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Legsteinar rjúka út á útsölu

20:12 › 22. janúar 2010
Á legsteinaútsölunum er nóg að gera og færst hefur í aukana að fyrirtækin auglýsi útsölur.

Á legsteinaútsölunum er nóg að gera og færst hefur í aukana að fyrirtækin auglýsi útsölur. Mynd Stefán Karlsson

Legsteinar seljast nú eins og heitar lummur þegar íslensk steinskurðarfyrirtæki auglýsa útsölur á legsteinum. Það færist í aukana að fyrirtækin auglýsi útsölu á þessum árstíma en þannig má til dæmis finna góð tilboð hjá S. Helgasyni og Granítsmiðjunni.

Stefán Ari Guðmundsson, framkvæmdastjóri S. Helgason, segir reynslu fyrirtækisins af legsteinaútsölum góða og ljóst er að Íslendingar nýti sér góð tilboð. „Við höfum verið með útstölu á legsteinum undanfarin fimm ár og ég sé að flest fyrirtækin eru farin að gera þetta. Legsteinar eru vara eins og önnur vara og þeir fara á útsölu líka. Þar setjum við legsteina sem hafa selst hægar hjá okkur og gefum afslátt af þeim,“ segir Stefán.

„Fólk kemur mikið til okkar á útsölum og þá seljast legsteinarnir meira. Ættingjar eru gjarnan að kaupa legsteina eftir á og því grípur fólk tækifærið þegar legsteinarnir bjóðast á góðum kjörum. Viðskiptin taka alltaf kipp hjá okkur á útsölunni og hún hefur reynst vel þannig að við höldum þessu áfram.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.