ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Landsbankinn tapaði 7 milljörðum fyrstu mánuði eftir hrun

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:47 › 22. janúar 2010
Afkoman var neikvæð um sjö milljarða króna.

Afkoman var neikvæð um sjö milljarða króna. Mynd DV

Afkoma Landsbankans eftir skatta var neikvæð um 6,9 milljarða króna fyrir tímabilið 7. október – 31. desember 2008. Rekstrarkostnaður af reglulegri starfsemi var 4,1 milljarður króna en hreinar þóknunartekjur námu einum milljarði króna.

Ástæðan fyrir neikvæðri rekstrarafkomu, samkvæmt tilkynningu Landsbankans, skýrist fyrst og fremst af tapi af markaðsskuldabréfum sem bankinn keypti af peningamarkaðssjóðum Landsvaka í október 2008, en það nam 38,2 milljörðum króna.

Rekstrarkostnaður tengdur yfirtöku eigna og skulda frá (gamla) Landsbanka Íslands hf. nam 3,2 milljörðum króna. Þarna er bæði færður beinn kostnaður við yfirtökuna og kostnaður sem Landsbankinn samþykkti að taka á sig sem hluta af samningaverðinu.

Heildareignir Landsbankans voru 1.037 milljarðar króna í árslok 2008 og hækkuðu um rúma 100 milljarða á tímabilinu. Þá hækkun má að stærstum hluta rekja til veikingar krónunnar.

Útlán til viðskiptavina námu á sama tíma 705 milljörðum króna, þar af voru um 170 milljarðar til einstaklinga. Um fjórðungur útlána Landsbankans er til sjávarútvegsfyrirtækja.

Innlán viðskiptavina námu 431 milljörðum króna, þar af voru verðtryggð innlán um 93 milljarðar. Verðtryggingarjöfnuður bankans er samt jákvæður um 54 milljarða.

Innlán fjármálafyrirtækja voru 132 milljarðar króna. Erlendar fjármálastofnanir eiga stærstan hluta þeirra. Í áætlunum bankans er gert ráð fyrir að þessi innlán færist yfir í aðrar fjárfestingar í síðasta lagi þegar gjaldeyrishöftum verður aflétt af flutningi fjármuna af þessi tagi. Bankinn er vel búinn til að mæta þessu mögulega útflæði innlána.

Eigið fé bankans var 143 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall (Tier 1) var þrettán prósent í árslok 2008.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.