Karl Wernersson kennir öðrum um

Karl og Steingrím greinir verulega á um hvernig stjórn Milestone og Sjóvár var háttað.

Karl og Steingrím greinir verulega á um hvernig stjórn Milestone og Sjóvár var háttað.

Föstudagur 22. janúar 2010 kl 07:00

Höfundur: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is)

Nánar um málið í DV í dag.

Karl Wernersson sagðist í yfirheyrslum hjá sérstökum saksóknara ekki hafa vitað um 15,7 milljarða króna lánveitingar frá Sjóvá í lok febrúar 2008. Meðal annars fóru lánin til eignarhaldsfélagsins Vafnings sem eigendur Milestone áttu ásamt Benedikt og Einari Sveinssyni. Karl mun í yfirheyrslunum hafa sagst lítið hafa vitað um fjárfestingar og lánveitingar Sjóvár. Í stað þess benti Karl ítrekað á Þór Sigfússon.

Sérstakur saksóknari efnahagshrunsins, Ólafur Hauksson, rannsakar lánveitingar frá tryggingafélaginu Sjóvá til eignarhaldsfélagsins Vafnings og Racon AB sem veitt voru þann 29. febrúar árið 2008. Sömuleiðis rannsakar Ólafur tvær lánveitingar frá Glitni til Vafnings sem bárust líklega í gegnum eignarhaldsfélagið Svartháf.

Heimildir DV herma að í yfirheyrslunum yfir Karli og Steingrími Wernerssonum og Þór Sigfússyni á seinni hluta síðasta árs hafi þeir verið spurðir ítarlega um lánveitingarnar og tilgang þeirra.

Í yfirheyrslunum yfir Karli mun hafa komið fram að hann, sem var stjórnarformaður Sjóvár og Milestone á þeim tíma sem Sjóvá lánaði Vafningi fjármunina, hafi ekki vitað um 15,7 milljarða lánveitingar til Vafnings og annarra dótturfélaga Milestone þennan dag. Karl skrifaði reyndar ekki undir lánasamningana heldur voru það eingöngu Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvár, og Sigríður Inga Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs félagsins. Þór skrifaði undir fjóra samninga og Sigríður undir einn.
Almennt séð mun Karl hafa verið sérlega óhjálplegur í yfirheyrslunum og sagt er að hann hafi lítið vitað um það sem starfsmenn sérstaks saksóknara spurðu hann um. Aðrar heimildir DV herma hins vegar að Karl hafi haft tögl og hagldir í Milestone-veldinu.

2. hluti umfjöllunar DV um Milestone-yfirheyrslurnar hjá sérstökum saksóknara hrunsins birtist í helgarblaðinu sem kemur út í dag.


Nánar um málið í DV í dag. Kaupa áskrift!


Senda á Facebook



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Fimmtudagur 28. janúar 2010 kl 09:49

Birgir: Bjarni Ben þarf að stíga fram

Miðvikudagur 27. janúar 2010 kl 14:35

Jón: Vafningur veikir Bjarna Ben

Miðvikudagur 27. janúar 2010 kl 12:57

Guðmundur: Bjarni tók þátt í spilltu fjármálalífi

Miðvikudagur 27. janúar 2010 kl 11:10

Saksóknari hefur alltaf vitað um aðkomu Bjarna Ben

Mánudagur 25. janúar 2010 kl 17:56

Lánveitingar Sjóvá ekki teknar fyrir í stjórn

Mánudagur 25. janúar 2010 kl 15:10

Tvær ástæður fyrir 30 milljarða tapi Sjóvá

Mánudagur 25. janúar 2010 kl 07:00

Guðmundur: Vissu af hruninu með löngum fyrirvara

Sunnudagur 24. janúar 2010 kl 18:45

Þór með hnút í maganum vegna rannsóknar

Laugardagur 23. janúar 2010 kl 16:57

Þór fékk 36 milljónir í laun hjá Sjóvá

Laugardagur 23. janúar 2010 kl 14:30

Yfirheyrslurnar í Milestone: Þór vissi ekki um annan veðrétt Sjóvá

Laugardagur 23. janúar 2010 kl 09:30

Karl: Vissi ekki um 15,7 milljarða lánveitingar Sjóvá

Laugardagur 23. janúar 2010 kl 02:30

29. febrúar 2008: Stór dagur í sögu Sjóvá

Föstudagur 22. janúar 2010 kl 22:20

Bjarni flæktur í Vafning sem er til rannsóknar hjá saksóknara

Föstudagur 22. janúar 2010 kl 15:00

Vinurinn hjá Morgan Stanley sem sá um lánveitingar til Milestone

Föstudagur 22. janúar 2010 kl 13:00

Þór las oft ekki samningana sem hann skrifaði undir hjá Sjóvá

Föstudagur 22. janúar 2010 kl 10:00

Sjóvá lánaði eigendum sínum 15,7 milljarða á einum degi

Föstudagur 22. janúar 2010 kl 09:05

Veðsettu bótasjóð Sjóvár fyrir Vafning

Fimmtudagur 21. janúar 2010 kl 09:00

Steingrímur: Fékk hvorki arð né upplýsingar

Miðvikudagur 20. janúar 2010 kl 22:45

Steingrímur kom lítið að viðskiptum Milestone

Miðvikudagur 20. janúar 2010 kl 18:38

Steingrímur vildi láta reka Tryggva Þór