ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Hylki dauðans í Taívan

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:30 › 22. janúar 2010
Misheppnaða baðstrandaparadísin stóð yfirgefin í áratugi.

Misheppnaða baðstrandaparadísin stóð yfirgefin í áratugi.

Í lok áttunda áratugarins var efnahagur Taívans í miklum blóma. Bóla myndaðist á byggingamarkaði og mörg stórhýsi voru reist. Nokkrir verktakar vildu taka þátt í veislunni og ákváðu að byggja stórt ferðamannahverfi við baðströnd. Húsin á svæðinu áttu að vitna til um framsækni og velgengi Taívana.

En bólan sprakk og töpuðu verktakarnir miklum fjármunum. Stóð hverfið autt þangað til í fyrra, en húsin vöktu mikla eftirtekt. Þau líktust fljúgandi furðuhlutum sem stóðu yfirgefnir í rústum ónýtrar fjárfestingar. Margir segja að yfirnáttúruleg fyrirbæri hafi valdið þessum ömurlegu endalokum.

Höfðað til bandarískra hermanna
San Zhi-hverfi í nágrenni Taípei í Taívan var byggt árið 1981. Framsæknir verktakar byggðu þyrpingu undarlegra húsa, sem minna helst á fljúgandi furðuhluti eða dularfull hylki. Hverfið átti að verða paradís fyrir ferðalanga í sumarfríinu en eigendurnir reyndu að höfða sérstaklega til bandarískra hermanna sem leituðu gjarnan að sólríkum íverustað í fríinu sem bandarískar herstöðvar í Austur-Asíu veittu þeim.

Álög drekans
Rekstur San Zhi hófst hins vegar aldrei því bankar skrúfuðu fyrir lánveitingar til verktakanna á umdeildan hátt en áður höfðu verkamenn og smiðir á staðnum lagt niður störf. Nokkrir verkamenn höfðu nefnilega látið lífið í slysförum við byggingu hverfisins, en margir ráku það til þess er stytta af kínverskum dreka var söguð í sundur til að víkka umferðargötu en sagt er að bölvun liggi við slíku. Aðrar sögusagnir herma að hollenskir hermenn liggi grafnir undir grunni húsþyrpingarinnar.

Rifin í fyrra
Hylkin stóðu síðan yfirgefin frá byggingu 1981 þangað til þau voru rifin í fyrra. Hverfið hafði í millitíðinni orðið frægur ferðamannastaður - en forvitnir gestir flykktust til Sun Zhi til að berja skrýtnu húsin augum og upplifa óhugnanlegan andann á svæðinu.

Hverfið hefur einnig verið notað sem leikmynd í kvikmyndum, tónlistarmyndböndum og verið ljósmyndað af ótal ferðalöngum. Hylkishúsin voru rifin snemma á síðasta ári en uppi eru áætlanir um að byggja nýtt og glæsilegt ferðamannasvæði með hótelum og baðströnd. Margir vara við slíku, óráðlegt sé að storka örlögunum, Sun Zhi sé álagablettur sem muni ekki leyfa ferðamönnum að eyðileggja svæðið.




Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.