ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Furðulegar staðreyndir um drauma

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:22 › 22. janúar 2010
Draumalandið. Draumar eru einkennileg fyrirbæri. Hvað ætli þig dreymi í nótt?

Draumalandið. Draumar eru einkennileg fyrirbæri. Hvað ætli þig dreymi í nótt? Mynd Photos

Draumar eru fyrirbæri sem koma okkur oft á óvart. Hindurvitni er gjarnan tengd við drauma og telja margir að draumar séu fyrirboðar einhvers; góðs eða ills. Hér að neðan má sjá nokkrar staðreyndir um drauma sem ekki verða hraktar.

Þú gleymir 90 prósent drauma þinna
Þó þú teljir að þig hafi ekki dreymt neitt í nótt er það misskilningur. Okkur dreymir öll en staðreyndin er sú að við gleymum þeim flestum. Fimm mínútum eftir að við vöknum erum við búin að gleyma helmingnum af því sem okkur dreymdi og eftir tíu mínútur er 90 prósent gleymt.

Blint fólk dreymir líka
Þeir sem hafa verið blindir allt sitt líf dreymir einnig. Þá dreymir hinsvegar á annan hátt en þeir sem sjá og nota önnur skynfæri til þess en myndir; svo sem lyktarskyn, heyrnarskyn og tilfinningaskyn.

Við sjáum eingöngu andlit sem við höfum séð áður
Dreymi þig einkennilegan draum og sérð andlit sem þú þekkir ekki eða telur þig ekki hafa séð áður hefurðu rangt fyrir þér. Í draumum sjáum við eingöngu andlit sem við höfum séð áður en við munum kannski ekki eftir þeim öllum. Á æviskeiði okkar sjáum við tugi ef ekki hundruð þúsunda andlita þannig að heilinn hefur úr nógu að velja þegar draumar eru annars vegar.

Marga dreymir í svart/hvítu
Tólf prósent fólks dreymir eingöngu í svart/hvítu. Alla aðra dreymir í lit. Það er svolítið merkilegt til þess að vita að áður fyrr var hlutfall svart/hvítra drauma mun hærra en það er nú. Þannig sýndi rannsókn sem framkvæmd var á árunum 1915 til 1950 að meirihluti fólks dreymdi í svart/hvítu. Í dag sýna rannsóknir að aðeins 4,4 prósent fólks undir 25 ára aldri dreymir í svart/hvítu. Er það rakið til þess að sjónvörp eru nú í lit en ekki svart/hvítu eins og áður.

Fleiri neikvæðir en jákvæðir draumar
Algengustu tilfinningarnar sem fólk finnur fyrir í draumum eru hræðsla og kvíði. Þá eru neikvæðir draumar algengari en jákvæðir. Ástæðan fyrir þessu er ekki kunn en hún kann að tengjast því að við munum frekar eftir neikvæðum reynslum en jákvæðum.

Dýr dreymir líka
Rannsóknir sýna að dýr dreymir líka og í raun á sama hátt og mannfólkið. Ef þú átt hund getur þú horft á hann sofa. Hjá sumum þeirra má sjá loppurnar hreyfast eins og þeir séu á hlaupum. Hljóð í svefni geta einnig gefið til kynna að þá sé að dreyma.

Umhverfishljóð og draumar
Margir kannast eflaust við það að hlusta á tónlist í draumi. Gefum okkur dæmi: Þú ert að hlusta á útvarpið í bílnum eða ert á tónleikum hjá uppáhalds hljómsveitinni þinni. Þegar þú vaknar áttarðu þig á því að þú ert í rúminu heima og tónlistin er lagið í símanum sem þú notar til að vekja þig.

Karla og konur dreymir ekki eins
Hjá körlum eru flestir draumar um aðra karla, eða um sjötíu prósent. Svo einkennilega vill til að kynjahlutfallið er það sama hjá konum, eða 50/50. Þá dreymir karla yfirleitt „árásargjarnari“ drauma en konur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.