Einn frægasti og líklega einhver sérstakasti köttur Bretlands, hinn tólf ára gamli Casper, er dauður. Casper vann það sér til frægðar að stökkva upp í strætó á hverjum morgni í heimabæ sínum Plymouth á Englandi og flakkaði hann um bæinn í honum þangað til hann stöðvaði aftur fyrir utan heimili hans.
Allir stærstu fjölmiðlar Bretlands fjölluðu um Casper á síðasta ári og vakti hegðun hans mikla athygli. Hann valdi sér alltaf sama sætið í strætisvagninum og naut hann það mikillar virðingar að viðskiptavinir sem sátu í sætinu hans stóðu upp þegar hann kom um borð. Casper varð hinsvegar fyrir bíl á dögunum þegar hann var á leið heim til sín eftir eina slíka ferð.
Dánartilkynningin var hengd upp á biðstöðinni sem Casper vandi komu sína á. „Fjölmargir þekktu Casper, sem elskaði alla og naut þess að ferðast um bæinn. Því miður varð hann fyrir bíl og stöðvaði ökumaðurinn ekki til að hjálpa honum. Casper drapst vegna meiðslanna. Hans verður sárt saknað. Þakka ykkur öllum sem hugsuðuð vel um hann,“ segir í tilkynningunni.
„Casper hreyfði við mörgum og lifði spennandi lífi. Okkur grunar að hann sé nú á ferð um himnaríki þar sem hann segir öllum hinum kisunum frá ævintýrum sínum,“ segir í tilkynningu sem strætisvagnafyrirtækið First Devon and Cornwall sendi frá sér. Hér að neðan má sjá umfjöllun BBC um köttinn Casper frá því síðasta sumar.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung