Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík verður haldið á morgun og verða úrslit kunngerð annað kvöld.
Enginn býður sig fram gegn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur í fyrsta sæti. Fimm bítast um annað sæti listans, Júlíus Vífill Ingvarsson, Geir Sveinsson, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Gísli Marteinn Baldursson og Kjartan Magnússon.
Þeirri tilgátu er fleygt að þessir frambjóðendur meti það svo að Hanna Birna kunni fyrr en seinna að flytjast af vettvangi borgarmálanna inn á svið landsmála. Það er að sínu leyti byggt á vangaveltum um að Bjarna Benediktssyni, núverandi formanni Sjálfstæðisflokksins, hafi ekki tekist að treysta valdastöðu sína í flokknum og margt sé honum mótdrægt, svo sem eins og viðskipti hans og ættmenna hans við eigendur Milestone og Sjóvár. Því kunni svo að fara að Bjarni víki um leið og Hanna Birna hæfist til meiri metorða innan flokksforystunnar.
Þannig líti fimmmenningarnir á baráttuna um annað sætið sem mögulega baráttu um leiðtogasæti flokksins í borginni.
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík bjóða sig fram í tiltekin sæti sem hér segir:
Hanna Birna Kristjánsdóttir 1. sæti
Gísli Marteinn Baldursson 2. sæti
Kjartan Magnússon 2. sæti
Júlíus Vífill Ingvarsson 2. sæti
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir 2. sæti
Geir Sveinsson 2. sæti
Jórunn Frímannsdóttir 3. sæti
Marta Guðjónsdóttir 3. sæti
Áslaug Friðriksdóttir 4. sæti
Kristján Guðmundsson 4. sæti
Ragnar Sær Ragnarsson 4. sæti
Hildur Sverrisdóttir 4. - 5. sæti
Þorkell Ragnarsson 5. sæti
Elínbjörg Magnúsdóttir 5. sæti
Björn Gíslason 5. sæti
Benedikt Ingi Tómasson 5. sæti
Emil Örn Kristjánsson 6. sæti
Jónann Páll Símonarson 7.- 8. sæti
Nánar í DV í dag





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir