ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Bjarni flæktur í Vafning sem er til rannsóknar hjá saksóknara

22:20 › 22. janúar 2010
Bjarni er flæktur í Vafning sem er til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara.

Bjarni er flæktur í Vafning sem er til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi stjórnarformaður BNT, er flæktur í viðskipti eignarhaldsfélagsins Vafnings sem eru til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara. Vafningur fékk 10,5 milljarða króna lán frá Sjóvá í febrúar 2008 og þann áttunda þess mánaðar veðsetti Bjarni hlutabréf föður síns og frænda í félaginu. Ástæðan fyrir þátttöku þeirra í Vafningsviðskiptunum var sú að þeir þurftu að endurfjármagna hlutabréf sem þeir áttu í Glitni inni í félaginu Þætti International.

Þáttur International var í eigu þeirra bræðra og dótturfélags Sjóvá sem aftur var í eigu Karls og Steingríms Wernerssona. Líkt og greint er frá í DV þurftu eigendur Þáttar að verða sér út um fjármagn til að varna því að fjárfestingabankinn Morgan Stanley leysti til sín 7 prósenta hlut félagsins í Glitni. Til þess fengu þeir lán frá Sjóvá og Glitni og borguðu upp lánin við Morgan Stanley sem námu um 15 milljörðum króna. Lánið frá Sjóvá var 10,5 milljarðar króna.

Bjarni veðsetti eignir Vafnings, sem seldar höfðu verið til félagsins frá Sjóvá, fyrir lánunum frá Glitni. Veðið fyrir lánunum frá Glitni var í lúxusturninum í Makaó og breskum fjárfestingasjóði, KCAJ. Líkt og greint er frá í DV í dag var Sjóvá hins vegar aðeins með annan veðrétt á eignirnar og átti því aldrei mikinn möguleika á að fá mikið upp í kröfur sínar. Lánið var afskrifað árið 2008 og var hluti af þeirri upphæð sem vantaði í sjóði Sjóvá þegar skilanefnd Glitnis tók tryggingafélagið yfir í fyrra. Sjóvá átti því ekki fyrir vátryggingaskuld sinni og gat því ekki staðið við lögformlegar skuldbindingar sínar gagnvart viðskiptavinum félagsins. Fyrir vikið þurfti ríkið að leggja Sjóvár til 12 milljarða króna í formi láns til að bjarga félaginu frá þroti.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.