Aðgerðir stjórnvalda leiða til skerðingar á dagskrárþjónustu RÚV segir Páll Magnússon útvarspsstjóri í fréttatilkynningu sem gefin var út eftir fund með starfsmönnum í höfuðstöðvunum í Efstaleiti.
Bent er á 420 milljóna króna skerðingu nefnskattsins samkvæmt fjárlögum. Páll segir að vegna þess hversu vel reksturinn standi þurfi ekki að skera niður sem nemur allri upphæðinni heldur um 270 milljónir króna á ári.
Ýmsir þættir og dagskrárliðir í sjónvarpi og útvarpi verða lagðir niður en öðrum breytt. Beinum útsendingum frá ýmsum viðburðum verður hætt. Fækkað var um 29 stöðugildi, 16 men beinum uppsögunum en 13 með öðrum hætti. Páll segir að þetta komi til viðbótar við miklar aðhaldsaðgerðir í kjölfar bankahrunsins en þá lækkuðu útgjöld RÚV um 700 milljónir króna á ári og snéru taprekstri í hagnað. Það dregur úr áfallinu nú segir útvarpsstjóri.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna