Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Kona frá Chillaton í Devon á Englandi mun væntanlega vera með hugann betur við aksturinn næst þegar hún bakkar bíl sínum út úr bílskúrnum á heimili sínu. Á meðfylgjandi mynd má sjá hvað getur gerst ef þú setur bílinn í fyrsta gír þegar þú átt að setja hann í bakkgír.
Konan, sem er á sjötugsaldri, slapp án meiðsla þótt ótrúlegt sé. Konan virðist hafa gefið allt í botn með þeim afleiðingum að bifreiðin fór í gegnum þunnan vegg á bílskúrnum og endaði ofan í lítilli á fyrir neðan. Konan var orðin nokkuð köld þegar lögregla og sjúkraflutningamenn komu á vettvang en sem fyrr segir óslösuð.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu