Meðal þess sem fram kom í yfirheyrslum sérstaks saksóknara yfir Steingrími Wernersyni sem DV fjallar um er að hann segist ítrekað hafa verið beðinn um að skrifa undir pappíra sem hann þekkti ekki og vissi svo ekki hvað gert var við.
Til að mynda sagðist Steingrímur hafa skrifað undir hluthafasamkomulag hjá Milestone sem aðeins hafi verið gert í einriti og hafi Karl haldið því eftir. Í hluthafasamkomulaginu kom fram að Karl ætti 60 prósent í félaginu og Steingrímur 40 prósent og var kveðið á um aðrgreiðslur út úr félaginu til bræðranna.
Steingrímur sagðist hins vegar aldrei hafa fengið arðgreiðslur samkvæmt upprunalega samkomulaginu heldur hafi hann fengið afrit af öðru samkomulagi þar sem ekki var kveðið á um arðgreiðslur. Steingrímur sagðist ekki hafa fengið arðgreiðslur en að hann reiknaði með að Karl hefði gert það.
Hann hefði verið snuðaður um þennan arð. Steingrímur bar því við að þarna hefði komið fram ásetningur Karls um að hann ætlaði að svíkja bróður sinn.
Í kjölfarið hafi Steingrímur beðið um að fá að sjá upprunalega hluthafasamkomulagið en ekki fengið það.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna