ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.4° 10m/s WSW

Steingrímur vildi láta reka Tryggva Þór

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:38 › 20. janúar 2010
Steingrímur vildi láta reka hann skömmu eftir að hann tók við hjá Askar.

Steingrímur vildi láta reka hann skömmu eftir að hann tók við hjá Askar.

Samkvæmt heimildum DV var eitt af því sem Steingrímur Wernersson, annar af eigendum Milestone, sagði í yfirheyrslunum hjá sérstökum saksóknara síðla árs í fyrra að hann hefði viljað láta reka Tryggva Þór Herbertsson, forstjóra Askar Capital, eftir að hann var búinn að vera forstjóri bankans í nokkra mánuði, það er á fyrri hluta árs 2007.

Benedikt Árnason, núverandi forstjóri Askar, mun hafa verið ráðinn undirmaður Tryggva um áramótin 2007-2008 til að hafa hemil á honum því forstjórinn hafði fljótlega misst tökin á vexti bankans og fjárfestingastefnu hans eftir því sem Steingrímur mun hafa sagt í skýrslutökunni hjá saksóknara.

Tryggvi hætti hins vegar ekki hjá Askar fyrr en sumarið 2008, eftir að hann hafði fengið tilboð um að gerast efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.