ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Steingrímur kom lítið að viðskiptum Milestone

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:45 › 20. janúar 2010
Steingrímur Wernersson kom lítið að rekstri Milestone og ákvörðunum enda átti hann einungis 40 prósenta hluta í félaginu á móti 60 prósenta hlut bróður síns.

Steingrímur Wernersson kom lítið að rekstri Milestone og ákvörðunum enda átti hann einungis 40 prósenta hluta í félaginu á móti 60 prósenta hlut bróður síns.

Steingrímur Wernersson kom lítið að rekstri og ákvörðunum í Milestone-samstæðunni á árunum fyrir hrunið. Hann átti félagið á móti Karli bróður sínum en átti 40 prósenta minnihluta á móti 60 prósenta hluta hans. Steingrímur var því formlega valdalaus í félaginu; Karl bróðir hans gat tekið ákvarðanir um einstakar viðskiptagerninga einn síns liðs. Þetta er meðal þess sem heimildir DV herma að hafi komið fram í yfirheyrslum yfir Steingrími hjá embætti sérstaks saksóknara í nóvember í fyrra.

Steingrímur vill hins vegar ekki ræða um aðkomu sína að rekstri Milestone eða vitnisburð sinn hjá sérstökum saksóknara í samtali við DV frá Lundúnum þar sem hann er búsettur. Hann neitar því hins vegar ekki að vitnisburður hans hjá sérstökum saksóknara hafi verið með þeim hætti sem rætt er um hér en heimildir DV fyrir því eru innan úr stjórnkerfinu og eru traustar.

Heimildir DV herma að Steingrímur hafi haft lítil völd hjá Milestone sem minnihlutaeigandi. Jafnframt segja þær að Steingrímur hafi ekkert komið að rekstri margra dótturfélaga Milestone, til að mynda Sjóvár, og að hann hafi fyrst og fremst átt að vera þægur og hlýða Karli varðandi rekstur Milestone.

Heimildir DV benda einnig til þess að Steingrímur hafi lítið sem ekkert vitað um rekstur Milestone og dótturfélaganna og oft ekkert vitað um einstaka viðskiptagerninga, til að mynda að Sjóvá hefði fjárfest í fasteignaverkefninu fræga í Makaó í Asíu.

Steingrímur mun einnig hafa sagt frá því að í sameiginlegum viðskiptum þeirra bræðra hafi þeir aldrei átt félög til jafns: Karl hafi alltaf átt meirihluta og því getað stjórnað öllum félögum án þess að ráðfæra sig við Steingrím. Vitnisburður Steingríms þykir trúlegur, að því er heimildir DV herma, en verið er að kanna aðkomu hans að rekstri Milestone hjá saksóknara. Vitnisburður Steingríms og önnur atriði rannsóknarinnar benda sterklega til að hann hafi haft lítið að segja um rekstur Milestone jafnvel þó að hann hafi verið á góðum launum sem starfsmaður samstæðunnar.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.