ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Kirkjubruninn: Menn eru í áfalli

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:11 › 2. janúar 2010
Þórhallur Heimisson.

Þórhallur Heimisson.

„Menn eru í áfalli vegna þess að við upplifum þetta sem árás á varnarlaust lítið barn,“ segir Þórhallur Heimisson prestur í Hafnarfirði um Krýsuvíkurkirkju sem brann í nótt. Kirkjan heyrði undir Hafnarfjarðarprestkall og segir Þórhallur hafa messað þar tvisvar á ári. Kirkjan var fjölsótt bæði af Íslendingum og erlendum ferðamönnum. Þórhallur segist hafa talað við slökkvilið og lögreglu um brunann.

Ekkert rafmagn er í kirkjunni og telur Þórhallur að eldsupptök hafi verið af mannavöldum, hvort sem um íkveikju er að ræða eða óhapp en eldsupptök eru enn óljós.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.