Myndirnar eru af starfi íslensku sveitarinnar á Haiti. Fleiri myndir má sjá á icear.com. Hægt er að sjá myndirnar að neðan stærri með því að smella á þær.
Rústabjörgunarsveit Íslensku Alþjóðabjörgunarsveitarinnar snéri til bækistöðva sinna á flugvellinum í Port au Prince klukkan tvö í nótt að íslenskum tíma. Sveitin hafði unnið með bandarískri sveit við leit á tveimur svæðum suður af flugvellinum í Port au Prince. Við sólsetur voru allar sveitir kallaðar í búðirnar því ekki var hægt að tryggja öryggi björgunarmanna í nótt.
"Friðargæsluveitir SÞ sem voru á Haiti þegar skjálftinn reið yfir hafa verið með björgunarsveitunum og tryggt þeirra öryggi. Friðargæslusveitirnar hafa nú verið í stöðugri vinnu í 60 klst og þurfa hvíld," segir í tilkynningu frá Stjórnstöð Íslensku Alþjóðabjörgunarsveitarinnar á Íslandi.
Þar kemur fram að íslenska sveitin sé hluti af rústabjörgunarsveitum Sameinuðu Þjóðanna og leggi til tjald undir stjórnstöð björgunarsveita. Einn meðlimur íslensku sveitarinnar er nú hluti af fimm manna stjórnunarteymi SÞ, sem samhæfir starf björgunarsveitanna í borginni.
Enn er vitað um fólk á lífi í rústum á því svæði sem íslenska sveitin hefur verið að leita. Þar hafa um 90 prósent rallra húsa eyðilagst.
Í Port au Prince eru núna 23 björgunarsveitir með 1067 björgunarsveitarmönnum og 114 leitarhundum.
Með greininni má sjá nýjar myndir frá hetjulegu starfi Íslensku Alþjóðabjörgunarsveitarinnar en fleiri myndir frá starfi sveitarinnar má skoða á vefsíðunni icesar.com.















Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“