Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Ökumenn og aðrir vegfarendur í miðborg Moskvu trúðu vart sínum eigin augum á dögunum þegar ansi svæsin klámmynd birtist á rafknúnu auglýsingaskilti við fjölfarna götu í borginni. Mynduðust töluverðar umferðartafir vegna þessa en myndskeiðið stóð yfir í um tvær mínútur.
Fjölmargir vegfarendur tóku ljósmyndir og stöldruðu forvitnir við. Forsvarsmenn fyrirtækisins 3 Stars, sem rekur og á skiltið, segja að líklega hafi óprúttinn einstaklingur hakkað sig inn í tölvubúnað fyrirtækisins með fyrrgreindum afleiðingum.
Það er þó kannski bót í máli að komið var fram yfir miðnætti þegar myndbandið birtist á skjánum. Lögregla rannsakar málið.





Um hvað ræðir FBI á leynilegum fundum? – Hlustaðu hér
Kynlíf í starfslýsingunni
Almennir borgarar dæma Breivik
Börn leggja á sig mörg þúsund kílómetra göngu í leit að betra lífi
Geyma lík í ræstikompum