ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Fyrrverandi landsliðsmaður ráðinn til Rúv

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:33 › 12. janúar 2010
Einar er kominn aftur á Rúv

Einar er kominn aftur á Rúv Mynd Rakel Ósk

Einar Örn Jónsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta og núverandi leikmaður Hauka, hefur verið ráðinn á íþróttadeild ríkissjónvarpsins. Einar hefur áður starfað á íþróttadeild Rúv en það gerði hann samhliða handboltanum á sínum tíma.

Einar er 34 ára gamall og á að baki farsælan handknattleiksferil, sem er þó ekki enn lokið. Hann er uppalinn hjá Val en hefur þess utan leikið með Haukum ásamt því að vera í atvinnumennsku í Þýskalandi og á Spáni. Hann er ríkjandi Íslandsmeistari með Haukum.

Þá á hann að baki 121 landsleik en hann var hluti af liðinu sem náði fjórða sætinu á Evrópumótinu árið 2002.

Einar hefur ekki látið blaðamennskuna alveg vera því í vetur birtist eftir hann viðtal í Stúdentablaðinu við Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.