Baneitrað kraftaverk: „Átti ekki von á dauða mínum“
Baneitrað kraftaverk. Konan keypti efnið í heilsubúð í miðborg Reykjavíkur.
„Ég átti ekki von á dauða mínum við að versla þarna MMS, þaðan af síður átti ég von á því að reyna að drepa mömmu mína með þessu,“ segir kona sem hafði samband við DV.is í kjölfar frétta í morgun af kraftaverkalausninni MMS (Miracle Mineral Solution). Eitrunardeild Landspítalans varaði í morgun við lausninni þar sem hún getur valdið alvarlegum veikindum eða dauða.
„Mér var bent á að taka þetta þar sem ég var alltaf þreytt. Ég tók þetta inn í nokkrar vikur en hætti því sem betur fer fljótlega,“ segir konan. Í tilkynningu frá Eitrunardeild Landspítalans kom fram að hægt væri að kaupa blönduna á netinu. Konan, sem hafði samband við DV.is, segist hinsvegar hafa keypt blönduna í heilsubúð í miðborg Reykjavíkur. Henni var skiljanlega verulega brugðið þegar hún las fréttina í morgun enda segir hún að fólk eigi að geta treyst því sem keypt er í verslunum hér á landi.
„Maður á von á því að það sem selt er í slíkum búðum sé öruggt. Mér var bent á að þetta væri algjör snilld og losaði líkamann við spilliefni og væri gott gegn þreytu. Þessu skúbbaði ég í mig í nokkrar vikur og benti svo móður minni á þetta sem er með mikið ofnæmi,“ segir konan. Hún lét því móður sína hafa flöskuna – enda óraði hana ekki fyrir skaðlegum áhrifum efnisins.
„Þetta fór mjög illa í hana þannig að hún hætti sem betur fer,“ segir konan og bætir við að móðir hennar hafi átt við nýrnavandamál að stríða. Í tilkynningunni í morgun kom fram að í lausninni sé 28 prósent natríum klórít. Það sé eitur sem getið valdið skemmdum á rauðum blóðkornum og nýrnabilun.
„Af því að það kemur fram að það er hægt að kaupa þetta á netinu þá vildi ég koma því á framfæri að það er einnig hægt að kaupa þetta í heilsubúð. Mér er mjög brugðið og ég er reið yfir þessu,“ segir hún.
Föstudagur 22. janúar 2010 kl 23:30
Hylki dauðans í Taívan
Föstudagur 22. janúar 2010 kl 22:42
Tvær bílveltur með skömmu millibili
Föstudagur 22. janúar 2010 kl 22:33
Haukur á Kanann
Föstudagur 22. janúar 2010 kl 22:20
Bjarni flæktur í Vafning sem er til rannsóknar hjá saksóknara
Föstudagur 22. janúar 2010 kl 22:16
Systir lánakóngs Kaupþings í dýrasta skilnaðarmáli Bretlands
Föstudagur 22. janúar 2010 kl 21:30
Snjóboltakast varð að mannráni
Föstudagur 22. janúar 2010 kl 21:25
Bakkgír, ekki fyrsti gír
Föstudagur 22. janúar 2010 kl 20:22
Furðulegar staðreyndir um drauma
Föstudagur 22. janúar 2010 kl 20:12
Legsteinar rjúka út á útsölu
Föstudagur 22. janúar 2010 kl 19:20
Tchenguiz-bræður vilja 400 milljarða
Föstudagur 22. janúar 2010 kl 18:38
Fimm slást um annað sætið
Föstudagur 22. janúar 2010 kl 18:19
Fannst látinn í Hvalfirði
Föstudagur 22. janúar 2010 kl 18:05
Frægasti köttur Bretlands dauður
Föstudagur 22. janúar 2010 kl 17:27
Blaðamannafélagið harmar uppsagnir
Föstudagur 22. janúar 2010 kl 16:47
Landsbankinn tapaði 7 milljörðum fyrstu mánuði eftir hrun
Föstudagur 22. janúar 2010 kl 16:35
„Höggið þyngra en við bjuggumst við“
Föstudagur 22. janúar 2010 kl 15:41
Betri staða dregur úr áfallinu segir útvarpsstjóri
Föstudagur 22. janúar 2010 kl 15:00
Vinurinn hjá Morgan Stanley sem sá um lánveitingar til Milestone
Föstudagur 22. janúar 2010 kl 14:54
Páll skilar jeppanum -kostnaðurinn nam milljónum á ári
Föstudagur 22. janúar 2010 kl 14:25







