ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Mannabein í bakgarði barnaníðings

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:55 › 9. september 2009
Beinin sem fundust í bakgarði húss Garrido eru af manni.

Beinin sem fundust í bakgarði húss Garrido eru af manni.

Beinin, sem fundust í garðinum við heimili Phillip Garrido í Kaliforníu, eru líklega af manni. Þetta kemur fram í bandarískum fjölmiðlum í dag. Garrido hefur verið fyrirferðamikill í fjölmiðlum að undanförnu en hann rændi Jaycee Lee Dugard þegar hún var ellefu ára.

Í síðustu viku var greint frá því að bein hefðu fundist við heimili Garrido. Nú hefur réttarlæknir rannsakað beinin og komist að þeirri niðurstöðu að þau séu af manneskju.

Jimmy Lee, talsmaður hjá lögreglunni í Contra Costa-sýslu í Kaliforníu, segir hinsvegar að ekki sé óalgengt að forn mannabein finnist á þessum slóðum. Ennfremur segir hann að ítarlegri rannsókn þurfi til að leggja mat á aldur beinanna.

Samkvæmt á vefsíði fréttastofunnar Fox kemur fram að Garrido hafi í nokkur skipti gætt húss nágranna sinna. Þá hafi hann stundum tjaldað í garðinum þar sem beinin fundust. Garrido hefur verið ákærður fyrir að ræna Dugard og nauðga henni og situr bak við lás og slá.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.