ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

Bjarni Ármanns sleppur við 800 milljóna skuld

08:00 › 9. september 2009

Gamli Glitnir þarf líklega að afskrifa rúmlega 800 milljóna króna skuld félags í eigu Bjarna Ármannssonar. Bjarni segir að lánið hjá Glitni hafi verið tekið í ársbyrjun 2008 til að fjármagna kaup á hlutabréfum í norska fasteignafélaginu Glitni Property Holding. Hann segir fjárfestinguna vera sorgarsögu. Bjarni fékk 7 milljarða í vasann þegar hann hætti hjá Glitni árið 2007 en segir að það væri óábyrg meðferð á fé að greiða skuldina við Glitni til baka.

Bjarni Ármannsson, fyrrverandi forstjóri Glitnis, hefur komist að samkomulagi við skilanefnd Glitnis um afskriftir á rúmlega 800 milljóna króna skuldum eignarhaldsfélags í eigu Bjarna við bankann. Komist var að samkomulaginu í byrjun þessa árs. Félagið heitir Imagine Investment og er í eigu Sjávarsýnar ehf., sem aftur er í 100 prósent eigu Bjarna og er skráð að heimili hans í Bakkavör á Seltjarnarnesi.

Bjarni segir að lánið hafi verið tekið hjá Glitni í lok árs 2007 til að fjármagna kaup Imagine á 12 prósenta hlut í Glitni Property Holding, fasteignafélagi sem skráð var í Noregi, fyrir 970 milljónir króna „Illu heilli tók Imagine lán hjá Glitni um áramótin 2007-2008 til að kaupa 12 prósenta hlut í Glitni Property Holding. Lánið var í norskum krónum og voru bréfin keypt af bankanum. Um þetta leyti var markaðurinn að byrja að hrynja hjá félaginu. Til að gera langa sögu stutta þá gekk þetta bara illa og tekjurnar hrundu,“ segir Bjarni en Glitnir Property Holding var að tæplega 50 prósent leyti í eigu Glitnis eftir að Bjarni keypti í félaginu.
Bjarni hafði hætt sem forstjóri Glitnis í apríllok 2007 en virðist hafa haft greiðan aðgang að lánsfé í bankanum; veðið fyrir láninu var í bréfunum í Glitni Property Holding að sögn Bjarna. Hann segist hafa keypt Imagine til að halda utan um eignarhlutinn í Glitni Property Holding.

Ekki er búið að afskrifa skuldirnar en staða Imagine er það slæm að líklega verður það þrautalending í málinu að skilanefnd Glitnis þarf að afskrifa skuldirnar. Imagine skilaði ársreikningi inn til Fyrirtækjaskrár í byrjun ágúst og er alveg ljóst af honum hversu slæm staða félagsins er.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?