Mamma Hreiðars Más seldi Kaupþingi gjafir
Hreiðar Már Sigurðsson.
Kaupþing banki var langstærsti viðskiptavinur Gjafavers, fyrirtækis sem var í eigu móður Hreiðars Más Sigurðssonar forstjóra samstæðunnar. Gréta Sigurðardóttir, móðir Hreiðars, seldi fyrirtæki sitt fyrir 80 til 100 milljónir í ársbyrjun 2007 en starfaði hjá því áfram. Gjafaver seldi Kaupþingi jólagjafir til starfsmanna bankans og ýmis konar auglýsingavöru, eins og til dæmis penna merkta Kaupþingi. Gjafaver sá erlendum útibúum Kaupþings einnig fyrir slíkri vöru.
Fyrirtækið Gjafaver sem var í eigu Grétu Sigurðardóttur, móður Hreiðars Más Sigurðssonar forstjóra Kaupþings, var á samningi hjá Kaupþingi um að selja bankanum ýmsar gjafir sem bankinn gaf síðan til starfsmanna sinna og helstu viðskiptavina. Meðal annars var um að ræða fína gjafavöru frá Rosenthal, Evu Solo og eins Tivoli-útvörpin þekktu sem einnig voru gefin til starfsmanna í öðrum bönkum. Einnig var um að ræða gjafakörfur með ýmis konar matvöru en starfsmenn Kaupþings hafa fengið slíkar körfur að gjöf frá bankanum á liðnum árum samkvæmt heimildum DV.
Gjafaver seldi Kaupþingi einnig ýmis konar auglýsingavöru eins og penna, vasabækur og dagatöl sem merkt voru bankanum. Viðskipti íslensku viðskiptabankanna þriggja með slíka vöru gátu numið tugum og jafnvel hundruðum milljóna króna á ári og skipti það þá miklu máli hversu mikil uppsveifla var í viðskiptalífinu á Íslandi á þessum tíma. Þörfin eftir slíkum auglýsingavarningi jókst eftir því sem velgengni bankanna varð meiri.
Föstudagur 18. september 2009 kl 23:30
Sömu lottótölur tvisvar í röð
Föstudagur 18. september 2009 kl 22:40
Ragnar með móral
Föstudagur 18. september 2009 kl 22:03
Björn ætlar ekki að taka við Mogganum
Föstudagur 18. september 2009 kl 21:40
Ræktaði marijúana á hraðbraut
Föstudagur 18. september 2009 kl 21:19
Norskur fjárfestir kaupir í MP Banka
Föstudagur 18. september 2009 kl 21:06
Svíar reiðir yfir meintum fjársvikum Sveins
Föstudagur 18. september 2009 kl 21:02
Guðlaugur Þór fagnar Jóhönnu
Föstudagur 18. september 2009 kl 20:11
Hvattar til að svelta sig
Föstudagur 18. september 2009 kl 19:28
Davíð aftur orðaður við Moggann
Föstudagur 18. september 2009 kl 18:47
Tekur Ólafur Ragnar áskorun?
Föstudagur 18. september 2009 kl 18:22
Jóhanna gagnrýnir stjórnarandstöðuna
Föstudagur 18. september 2009 kl 17:46
Í fótspor Helga Hóseassonar
Föstudagur 18. september 2009 kl 17:42
Morðingi vann í breska lottóinu
Föstudagur 18. september 2009 kl 17:18
Ólafur segist ganga stoltur frá borði
Föstudagur 18. september 2009 kl 16:36
Fangi á dauðadeild slapp úr fangelsi
Föstudagur 18. september 2009 kl 16:22
Réttindalaus ók á strætó í annarlegu ástandi
Föstudagur 18. september 2009 kl 16:20
„Veikleiki Jóhönnu“
Föstudagur 18. september 2009 kl 15:34
Ritstjóri býður upp á bjór
Föstudagur 18. september 2009 kl 15:33
„Eðlilegast að Gunnar víki“
Föstudagur 18. september 2009 kl 15:15







