Bjarni Haukur Þórsson gerir lítið úr því að leikhúsgestir hafi komð að luktum dyrum Loftkastalans um helgina. Þar átti að vera sýning á Fúlum á móti en hún féll óvænt niður og ekki náðist í alla gesti. María Sigurðardóttir leikstjóri harmar atvikið mjög og hefur beðið viðkomandi leikhúsgesti afsökunar. Bjarni Haukur hótar því hins vegar að hætta að auglýsa hjá útgáfufélagi DV ef fjallað er um málið.
„Þetta er „chickenshit.“ Þetta er ekki neitt neitt. Þetta er algjörlega á ábyrgð Leikfélags Akureyrar. Það er verið að setja okkur í mjög erfiða aðstöðu og svo bara fáum við allan skítinn fyrir,“ segir Bjarni Haukur Þórsson, leikhússtjóri Loftkastalans. Hann vísar alfarið frá sér ábyrgð á því að fjöldi leikhúsgesta kom að lokuðum dyrum Loftkastalans á laugardagskvöldið þar sem sýningin Fúlar á móti átti að fara fram.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision
Vítamín í vörina: Tóbaksgjald hindrar innflutning
Reykjavíkurborg dæmd til að greiða Frjálslyndum 6,7 milljónir