Hótar að hætta að auglýsa vegna umfjöllunar
Bjarni Haukur gerir lítið úr því að leikhúsgestir komu að lokuðum dyrum Loftkastalans um helgina.
„Ef þið ætlið að gera þetta þá bara auglýsi ég ekkert hjá ykkur. Það er bara þannig, skilurðu? Bara mjög einfalt. Og þá bara verðið þið af þeim tekjum. Það kemur bara niður á ykkur,“ segir Bjarni Haukur Þórsson, leikhússtjóri Loftkastalans. Hann tók því afar illa þegar blaðamaður DV spurði hann út í þá staðreynd að fjöldi leikhúsgesta kom að lokuðum dyrum á laugardagskvöldið þar sem sýning á Fúlum á móti átti að fara fram.
Bjarni Haukur ítrekaði að honum fyndist málið ekki fréttnæmt og því engin ástæða til að fjalla um málið. „Þetta er bara lágkúrublaðamennska finnst mér,“ segir hann. „Ef þið ætlið að fara að keyra þetta þá erum við bara ekkert að „sörvisa“ Dagblaðið eða þessa samsteypu sem gefur þetta blað út og erum bara ekkert að auglýsa þar og sleppum því bara algjörlega, alfarið,“ segir Bjarni Haukur.
Leikhúsunnandi sem hafði keypt miða á sýninguna hafði samband við DV.is um helgina og sagði farir sínar ekki sléttar. „Þetta er mjög svekkjandi. Við vinkonurnar fórum út að borða í kvöld fyrir sýninguna, en komum síðan að luktum dyrum. Engin tilkynning var á hurðinni um að sýningin félli niður eða neitt gert til að láta leikhúsgesti vita,“ sagði Kristín Stefánsdóttir athafnakona í samtali við dv.is en hún átti pantaðan miða á sýninguna ásamt sex vinkonum.
Þriðjudagur 8. september 2009 kl 06:37
Lítið gert úr leiða leikhússgesta
Laugardagur 5. september 2009 kl 20:49








