„Hún gengur en við þurfum að vanda okkur eins og aðrir. Við finnum auðvitað fyrir því eins og aðrir að það er kreppa í samfélaginu en við erum ekki í neinni hættu,“ segir Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis, spurður um fjárhagsstöðu skólans. Gengið var frá ráðningu Hjálmars nú um mánaðamótin en hann hafði áður starfað sem framkvæmdastjóri ákveðinna deilda skólans. Hann segist mjög ánægður hjá Keili. „Þetta er starf sem ég er búinn að vera í í tvö ár og hef yndi af. Þetta er skemmtilegasta starf sem ég hef komið í,“ segir hann.
DV spurði Hjálmar sömuleiðis um fregnir þess efnis að Stefanía Katrín Karlsdóttir, fjármálastjóri Keilis, væri að hætta. „Hún er hér enn en hún er á förum, það er rétt. Hún er að fara í verkefni sem hefur verið í undirbúningi í langan tíma. Það er allt í góðu og ekkert óeðlilegt þar,“ segir Hjálmar.
Áður en þetta fékkst staðfest hafði blaðamaður hins vegar samband við Stefaníu sjálfa sem brást illa við spurningu um hvort hún hefði sagt starfi sínu lausu.
„Veistu það, hvort sem það passar eða passar ekki, ég bara tel enga ástæðu til að tjá mig neitt um það við þig og mér finnst það bara ekki koma nokkrum manni við hvort að svo sé eða svo sé ekki. Ég ætla bara ekkert að svara þessu neitt öðruvísi. Mér finnst bara dónaskapur að hringja í mig og spyrja mig um svona hluti. Þú spyrðir mig ekki hvenær ég vaknaði í morgun,“ sagði Stefanía. Þegar blaðamaður útskýrði að hann hefði fengið ábendingu um starfslok Stefaníu og hefði því hringt til að fá úr því skorið, ítrekaði hún: „Þér kemur það ekki við. Ég ætla ekki að svara þessu öðruvísi.“
Stefanía hefur meðal annars starfað sem rektor Tækniháskóla Íslands og var um tíma bæjarstjóri Árborgar.






Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir