ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.8° 6m/s SE

Vildi heilla Hells Angels

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:55 › 6. september 2009
Hvarf í sautján daga. Svíar voru harmi slegnir þegar Fabian Bengtsson var rænt.

Hvarf í sautján daga. Svíar voru harmi slegnir þegar Fabian Bengtsson var rænt.

Vélhjólaklúbburinn Fáfnir MC hefur verið lagður niður og hefur stöðu væntanlegra félaga í samtökunum Vítisenglum. Klúbburinn getur sótt um fulla aðild á seinni hluta næsta árs. Á Norðurlöndunum hafa mansal, morð, mannrán og alvarlegir glæpir tengdir ofbeldi og fíkniefnum tengst Vítisenglum um árabil.

Í helgarblaði DV er ítarleg úttekt á starfsemi Vítisengla þar sem meðal annars er talað við Íslending sem var meðlimur í skandinavískum klúbbi sem vildi verða meðlimur í Hells Angels. Þá er greint frá ýmsum ofbeldisverkum sem meðlimir samtakanna hafa framið, meðal annars mannráni á forstjóra sænsku raftækjaverslunarinnar Siba, Fabian Bengtsson.

Bengtsson var rænt mánudaginn 17. janúar árið 2005. Mikil hræðsla greip um sig í Svíþjóð en sautján dögum seinna fannst Bengtsson í garði í Gautaborg, í aðeins fimmtán mínútna göngufjarlægð frá heimili sínu. Samkvæmt vitnum á staðnum virtist sem Bengtsson væri á einhvers konar lyfjum og leit hann hryllilega illa út.

Þrír menn voru dæmdir og hlutu alls átján ára fangelsi fyrir mannránið. Einn þeirra, ungur maður sem þá var 27 ára, fékk tveggja ára fangelsisdóm. Hann tók ekki beinan þátt í mannráninu en tók virkan þátt í skipulagningu þess.

Vinur mannsins fór í viðtal við norska blaðið Dagbladet á þessum tíma. Hann sagði vin sinn einu sinni hafa sagt í partíi að hann vildi gera eitthvað stórt fyrir peninga. Maðurinn var þá í peningavandræðum og þannig hafi mannránshugmyndin komið upp. Að sögn vinarins vildi hann ganga í augun á hetjunum sínum í Hells Angels. „Stóri draumurinn hans var að verða meðlimur í Hells Angels.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.