Nýlega sýndi ástralska útgáfa fréttskýringaþáttarins 60 minutes innslag um Ísland og efnahagshrunið. Meðal þeirra sem rætt var við voru Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, fyrrum bankamanninn Stefán Aflsson og sjónvarpsdrottninguna Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur. Eða eins og ástralski fréttaþulurinn ber það fram, „Regenheldur Stænönn Djonsdoter“.
Í innskotinu er íslendingum lýst sem rugluðum sjómönnum sem misstu sig í bankaleik og að Ísland sé fyrsta landið í heiminum til þess að verða „gjörsamlega gjaldþrota“. Einnig er rædd trú landsmanna á álfum. „Já, að vissu leiti geri ég það,“ segir svo Ragnhildur þegar hún er spurð að því hvort hún trúi sjálf á álfana.
Ástralski fréttaþulurinn spyr einnig Steingrím J. að því hversu slæmt sukkið hafi verið á landsmönnum þegar góðærið stóð sem hæst og svarar hann þá, „Til dæmis þá átti náungi afmæli hér á Íslandi og hann flaug Elton John hingað til þess að syngja tvö lög,“ en þar á Steingrímur við fimmtugsafmæli Ólafs Ólafssonar.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar
Bauð engum stjörnum