Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og bloggari á Eyjan.is, hefur skrifað Guðmundi Magnússyni, ritstjóra síðunnar, bréf þar sem hann kvartar undan skrifum Teits Atlasonar, guðfræðingi og bloggara á Eyjunni.
Það sem fer fyrir brjóstið á Tryggva er færsla sem Teitur skrifaði í gær undir yfirskriftinni „hræsinn hagfræðingur“. Þar gagnrýnir Teitur færslu sem Tryggvi skrifaði um 150 milljarða halla ríkissjóðs. Sagði Tryggvi að stjórnmaálamenn vilji í eðli sínu frekar auga útgjöld en minnka, sérstaklega vinstrimenn.
Þetta er ekki eina færslan sem fer fyrir brjóstið á Tryggva því hann kvartar einnig til Guðmundar undan skrifum Teits um að þriðjungur þjóðarinnar séu „hugtrylltir sækópatar“ fyrir að styðja Sjálfstæðisflokkinn. Tryggvi skrifaði því Guðmundi bréf sem hann birtir á bloggsíðu sinni:
„Sæll Guðmundur,
Eitt sem mig langar til að bera upp við þig.
Skrif Teits Atlasonar á eyjunni eru komin út yfir allan þjófabálk. Eitt er munnsöfnuður í athugasemdum (sem maður getur reyndar lokað á) og svívirðingar í “óbreyttum” bloggum út í bæ. Annað er að eyjan bíður völdu fólki að skrifa undir sínu nafni og kynna sjónarmið sín. Skrif Teits hafa verið að herðast mjög, sbr. skrif hans um að kjósendur sjálfstæðisflokksins séu sækópatar og einng var ansi rætið blogg um mig á dögunum. Eitt eru skoðanaskipti (þrátt fyrir að þau séu harkaleg) annað er að skrifa hreinar og klárar svívirðingar sem hafa engan tilgang annan en að meiða.
Má ég leggja til að þú talir við Teit og biðjir hann vera málefnalegur og gæta velsæmis. Ef þetta heldur fram sem horfir er hætta á að plagsiðurinn smitist út til annarra skríbenta á eyjunni og eyðileggi þetta fína samfélag sem eyjan er.
Kær kveðja,
Tryggvi Þór“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna